Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1174, 138. löggjafarþing 394. mál: opinber stuðningur við tæknirannsóknir, nýsköpun og atvinnuþróun (skipun í stjórn Tækniþróunarsjóðs).
Lög nr. 54 10. júní 2010.
Í stjórn Tækniþróunarsjóðs sitja sex menn sem iðnaðarráðherra skipar til tveggja ára, þ.m.t. eru formaður og varaformaður. Þeim sem eru skipaðir er einungis heimilt að sitja tvö tímabil í senn. Tveir þeirra skulu skipaðir samkvæmt tilnefningu Samtaka atvinnulífsins, einn samkvæmt tilnefningu tækninefndar Vísinda- og tækniráðs, einn samkvæmt tilnefningu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, einn samkvæmt tilnefningu Samtaka iðnaðarins, en ráðherra skipar einn án tilnefningar.
Ákvæði til bráðabirgða.
Við skipun í stjórn Tækniþróunarsjóðs fyrir 1. september 2010 skulu þrír menn skipaðir til eins árs. Skal það ár teljast sem eitt tímabil. Þetta á þó ekki við um þann sem ráðherra skipar án tilnefningar.
Þingskjal 1174, 138. löggjafarþing 394. mál: opinber stuðningur við tæknirannsóknir, nýsköpun og atvinnuþróun (skipun í stjórn Tækniþróunarsjóðs).
Lög nr. 54 10. júní 2010.
Lög um breytingu á lögum nr. 75/2007, um opinberan stuðning við tæknirannsóknir, nýsköpun og atvinnuþróun.
1. gr.
1. mgr. 12. gr. laganna orðast svo:Í stjórn Tækniþróunarsjóðs sitja sex menn sem iðnaðarráðherra skipar til tveggja ára, þ.m.t. eru formaður og varaformaður. Þeim sem eru skipaðir er einungis heimilt að sitja tvö tímabil í senn. Tveir þeirra skulu skipaðir samkvæmt tilnefningu Samtaka atvinnulífsins, einn samkvæmt tilnefningu tækninefndar Vísinda- og tækniráðs, einn samkvæmt tilnefningu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, einn samkvæmt tilnefningu Samtaka iðnaðarins, en ráðherra skipar einn án tilnefningar.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 1. júní 2010.